Haraldur Örn - haus
21. maí 2010

Bein útsending af Hnúknum

hvannadalshnjukurFjallafélagið ætlar í samstarfi við Símann að standa fyrir útsendingu af toppnum á Hvannadalshnúk. Ef allt gengur að óskum hefst útsendingin milli 9 og 10 í fyrramálið. Hægt verður að nálgast útsendinguna á þessum slóðum: mms://wms3.straumar.is/endless og http://wms3.straumar.is/endless. Einnig verður útsendingin aðgengileg á facebook síðu Símans www.facebook.com/siminn.is.
Gangan er lokapunkturinn í 9000 metra áskorun Fjallafélagsins og Símans. Vikulegar göngur hafa verið í allan vetur með Hnúkinn sem lokamarkmið. Það verður því spennandi að sjá hvernig til tekst.