Haraldur Örn - haus
27. maí 2010

Vel heppnuð útsending af Hnúknum

Hvannadalshnukur9 Síðustu helgi stóð Síminn og Fjallafélagið að útsendingu af tindi Hvannadalshnúks. Hægt var að fylgjast með streyminu á netinu á laugardagsmorgninum. Þetta var skemmtileg tilraun sem heppnaðist vel. Eftir að hafa unnið það afrek að ganga á hæsta tind landsins gátu göngugarparnir gefið ættingjum, vinum og öðrum áhugasömum innsýn í ferðina.