Sigurður Erlingsson - haus
31. janúar 2013

Lífið er núna !

Borðarðu einhvern tímann ís án þess að fá samviskubit og hugsa, hmm ég er nú of þung/ur? fjolskylda_1188814.jpgErtu stöðugt að fresta því að fara í frí, þangaði til þú hefur safnað nægum peningum fyrir fríinu eða bara þangað til stendur betur á?  Frestarðu skemmtilegum tækifærum, vegna þess að þú telur þig hafa annað meira áríðandi verkefni sem þarf að ljúka?Flestir eru 100%  sekir um um þessi atriði núna.  

Lífið þitt líður hjá, á meðan þú finnur þér stöðugt afsakanir, engin veit sína ævi, svo það er rétt að njóta hverrar stundar með þeim sem skipta þig máli, núna strax.  Ekki vera of upptekinn að lifa lífinu þannig að þú sért alltaf að velta fyrir þér hvað aðrir eru að hugsa, eða hvernig þú heldur að aðrir haldi að þú eigir að lifa því.
Þegar syrgjendur koma saman og kveðja látin ástvin, þá renna tárin yfir söknuði um orðin sem ekki voru sögð og hlutina sem ekki voru gerðir saman. Veltu því fyrir þér í smá tíma og komdu þér svo af stað að koma hlutunum í verk.

Hvenær fékkstu þér seinast girnilega súkkulaðiköku? Hvenær komstu óvænt í heimsókn til vinar, sem þú ert búinn að ætla að heimsækja í marga mánuði eða ár? Hvað með að fara út með börnunum að leika í snjónum, fara í bíó, hafa spilakvöld eða bara gera eitthvað sem ykkur finnst skemmtilegt?

Það eru til ófáar sögur um fólk, konur og menn sem eru komin á seinasta aldurskeið í lífinu sínu, þar sem það segir frá því hvað það sjái mest eftir í lífinu.  Þau óskuð sér að þau hefðu leikið sér meira. Þau óskuð sér að þau hefður borðað meiri rjómaís án þess að vera með samviskubit. Þau óskuðu þess að þau hefðu ferðast meira og átt meiri og betri stundir með fjölskyldu sinni, maka og börnum.

Það er auðvelt að líta til baka, en þegar þú ert í amstri dagsins þá er koma afsakanirnar endalaust um að gera þetta seinna, þegar betur stendur á.  Láttu ekki afsakanrinar standa í vegi fyrir því að þú njótir lífsins á hverjum tíma.

Hér eru nokkur góð ráð:

1. Hvað er það sem þú hefur endalaust verið að fresta?

Hvað hefur þú endalaust verið að hugsa um að gera, en alltaf frestað?  Hefur þig langað að sjá einhvern stað? Hefur þið langað til að bjóða vinum í mat? Hefur þig langað til að fara helgarferð með fjölskyldunni eða eiga skemmtilega stund með makanum? Að halda endalaust áfram að tala um hlutina, lætur þá ekkert gerast hraðar.  Veldu eitt sem þig hefur lengi langað til að gera og framkvæmdu það.

2. Aðgerðarplanið.

Það er þýðingarlaust að tala um hlutina ef það fylgja ekki aðgerðir á bak við orðin. Ef þig hefur verið að dreyma um að eiga skemmtilega helgi með makanum, hvað þarf í raunveruleikanum til að það geti gerst?  Hvenær hafið þið lausan tíma, hvað mun það kosta, þurfið þið að spara eitthvað til að gera þetta raunverulegt.

Skrifaðu niður nákvæman lista yfir öll skrefin sem þið þurfið að taka til að þetta verið raunverulegt.  Athugið að það þarf ekki að kosta neitt nema tíma að gera skemmtilega hluti.  Að skrá markmið niður í hluta sem eru aðgengilegir, auka líkurnar til muna um að þú náir takmarki þínu. Nýtt þér draumaborðin á www.velgengni.is þar er aðgengilegt svæði til að skrá drauma sína og markmið og koma þeim í gang. Byrjaðu strax.

3. Skemmtu þér.

Hvenær kemur betri tími til að skemmta og leika sér, upplifa sig eins og barn aftur? Við erum aðeins að eldast,  svo er ekki tími núna til að snúa á tímann og leika sér.  Skrifaðu niður lista yfir það sem þig langar til að gera og þú hefur gaman af.  Fá sér bananasplitt. Sjá bíómynd.  Dekurdag í heilsuræktinni. Út að borða og gista nótt á hóteli. Prófa fallhlífarstökk eða svifflug.  Einsettu þér að fá meiri gleði inní lífið þitt.

Gangi þér vel.

mynd
9. ágúst 2012

Fyrirgefning

Fyrirgefning vinnur ekki gegn heilbrigðum takmörkum eða því sem við höfum lært frá eigin upplifun.  Í stað þess kennir það okkur að víkka innri þekkingu og traust. Hver upplifun sem við höfum orðið fyrir er tækifæri til að læra, vaxa og byggja upp samúð. Án fyrirgefningar, munum við verða vansæl og bitur, og á endanum missa lífsgleðina. Krafturinn á bak við fyrirgefninguna er mjúkur og hlýr;… Meira
mynd
7. september 2011

Hamingja er ákvörðun

Velgengni og hamingja eru tilfinningar sem allar manneskjur á jörðinni þrá í hjarta sínu. En samt leita flest okkar af hamingjunni á röngum stöðum, sem veldur okkur enn meiri vonbrigðum og kvöl. Það er vegna þess að við erum að leita af hamingjunni fyrir utan okkur sjálf, eftir einhverjum hlut eða eftir því að einhver annar færi okkur hamingjuna. Við förum frá herberbergi til herbergis í leit að… Meira
mynd
26. ágúst 2011

Njóttu lífsins

Viltu vita hvernig átt þú að njóta lífsins, með því að yfirstíga hindrandi skoðanir?   Skoðanir okkar eða það sem við trúum mótar það hver við erum.  Það sem við trúum innra með okkur, verður það sem við sköpum í kringum okkur.  Það er stundum sagt að okkar innri hugarheimur skapi þann ytri.   Ef við höfum skoðanir og trú sem styður við okkur, sem eru í samræmi við drauma okkar… Meira
mynd
16. júní 2011

Særðar tilfinningar

Einn félagi minn sem ég var að spjalla við um daginn, sagði mér að hann væri þreyttur á upplifa sjaldan hamingju og gleði. Hann er rúmlega fertugur, giftur og á börn. „Ég man þegar ég var lítill strákur, þá var ég oft glaður og fullur af eftirvæntingu fyrir lífinu. En foreldrar mínir studdu ekki við mig. Þau voru áhugalaus um að styðja við það sem ég hafði áhuga á  um að örva… Meira
mynd
30. maí 2011

Fyrirgefning

Fyrirgefning er leið til að sleppa. Samt eru svo margir sem líta á að fyrirgefning sé það sama og að gefa eftir, að láta eitthvað viðgangast eða sem veikleikamerki.  Eins og að fyrirgefa einhverjum eða sjálfum sér sé samþykki á áframhaldandi virðingarleysi eða misnotkun.  Með því að fyrirgefa ekki, erum við í raun að skaða okkur sjálf meira heldur en upphaflegi skaðinn var. Þegar við… Meira
mynd
24. maí 2011

Nýr dagur

Hvert skipti sem við vöknum, höfum við möguleika á að gera daginn í dag að besta degi lífs okkar. Við eigum valkost í að gera þetta að góðum degi.  Við verðum að nota frjálsa viljann okkar og velja að gera þetta að besta degi lífs okkar. En hvernig gerum við þetta hvern morgun þegar vekjaraklukkan ýtir okkur út úr draumalandinu? Þegar ég vaknaði einn daginn, heyrði ég að það var rigning úti.… Meira
mynd
18. maí 2011

Hamingja er val

Okkar endilega frelsi er réttur og vald til að ákveða hvernig og hvað sem er utan okkur sjálfra hefur   áhrif á okkur. Þetta er öflugt frelsi. Og frá mínum bæjardyrum séð, getum við líka séð það þannig að  þetta endanlega frelsi er réttur okkar og vald til að ákvarða okkar eigin ásetning: Til að vernda okkur gagnavart sársauka með meðvitaðri hegðun. Til að læra hvað þýðir að við… Meira
mynd
11. maí 2011

Njóttu lífsins

Þegar við upplifum aðstæður eins og eru núna í þjóðfélaginu, erfiðleikar og vonleysi svo yfirgnæfandi í öllum fjölmiðlum, þá er hætta á að við missum máttinn og frestum lífinu. Löngunin til að njóta lífsins og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum eru ekki til staðar.   Það er mjög mikilvægt að staldra við og átta sig á því hver eru raunverulegu verðmætin og hvað  tíminn og… Meira
mynd
9. maí 2011

Með opið hjarta?

Lifir þú lífinu með hjartað að mestu opið eða lokað? Eyðir þú mestum tíma þínum í að vernda  þig gagnvart höfnun eða að einhver sé mögulega að meta kosti þína, eða ertu mest allan tíma þinn opinn fyrir því að deila ást og kærleika þínum meðal annarra? Margir hafa upplifað erfiðar aðstæður í æsku, reynslu sem varð þess valdandi að þeir lokuðu hjarta sínu. Hvaða aðstæður upplifðir þú, sem… Meira