97% þeirra sem taka afstöðu hlynnt aukinni orkuframleiðslu • Aðeins 2,6% andvíg frekari orkuvirkjun • Niðurstaðan kemur forsætisráðherra ekki á óvart • SA segja orkuskipti kalla á tvöföldun orkuöflunar Meira
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir sjálfsagt að skoða það að semja við erlend ríki um að hýsa fanga með erlent ríkisfang fyrir Ísland. Málið hefur þó ekki komið til skoðunar í dómsmálaráðuneytinu Meira
„Undirbúningsnefndin hét því að halda aldrei aftur upp á 90 ára afmæli mitt,“ segir Sveinn Einarsson, fv. þjóðleikhússtjóri með meiru, en fjölmenn móttaka var haldin í Borgarleikhúsinu á 90 ára afmæli hans í gær Meira
Benedikt Sveinsson, lögmaður og athafnamaður í Garðabæ, lést á þriðjudagskvöld, 86 ára gamall. Benedikt fæddist í Reykjavík 31. júlí 1938 og ólst upp í húsi sem stóð á Laugavegi 18 til tíu ára aldurs, en þá flutti fjölskyldan í Hlíðarnar Meira
Oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn hefði ekki lagst gegn uppfærslu samgöngusáttmálans • Segir varamann sinn hafa verið að fylgja flokkslínum • Telur mikilvægt að rjúfa kyrrstöðu í samgöngumálum Meira
Ráðherra vill að virkjanamál verði sett í algeran forgang Meira
Íslenska sjávarútvegssýningin, IceFish, var opnuð í Smáranum í Kópavogi í gær, en hún stendur yfir fram á föstudag nk. Þetta er í fjórtánda sinn sem sýningin er haldin, en hún hóf göngu sína árið 1984 og hefur jafnan verið fjölsótt Meira
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir sjálfsagt að skoða það að semja við önnur ríki um að hýsa fanga með erlent ríkisfang sem hlotið hafa dóm á Íslandi. „Það hefur ekki komið til sérstakrar skoðunar í dómsmálaráðuneytinu að semja við… Meira
Alvarlegum ofbeldismálum fjölgað hér á landi á undanförnum árum • Greiningardeild ríkislögreglustjóra hefur varað við erlendum glæpahópum sem hafa haslað sér völl • Blandaðir glæpahópar á Íslandi Meira
Við sameiningu lögreglustjóraembættanna á höfuðborgarsvæðinu árið 2007 voru lagðar niður litlar hverfisstöðvar í Reykjavík, á Setjarnarnesi og í Garðabæ. Starfsstöðvar voru settar upp í Kópavogi, Hafnarfirði og á tveimur stöðum í Reykjavík Meira
Kristinn Már Stefánsson, fyrrverandi landsliðsmaður og landsliðsþjálfari í körfuknattleik, lést sl. föstudag á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni eftir veikindi, 79 ára að aldri. Kristinn fæddist í Reykjavík 3 Meira
Yfirframleiðandi Kveiks kallaður til yfirheyrslu • Rannsókn á lokametrum Meira
Ágreiningur um séreignarsparnað og veiðigjöld • Leggur áherslu á aðhald í ríkisrekstrinum l Ósamræmi milli þjóðhagsspár og útkomu í ríkisreikningi l Umræðan gefur ekki rétta mynd Meira
Skipað var í embætti forstjóra þriggja nýrra stofnana sem heyra undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið í gær, en um er að ræða Náttúrufræðistofnun, Umhverfis- og orkustofnun og Náttúruverndarstofnun Meira
Niðurstöður birtar úr könnun á kjörum sveitarstjóra og sveitarstjórnarfólks í 44 sveitarfélögum • Kjörnir fulltrúar í ellefu sveitarfélögum með 200 þúsund eða meira í laun fyrir setu í sveitarstjórn Meira
Þess var minnst í gær með sérstakri athöfn í Vinaskógi að 75 ár eru liðin frá fyrstu gróðursetningu frændþjóðanna Noregs og Íslands á Þingvöllum árið 1949. Forseti lýðveldisins, Halla Tómasdóttir, gróðursetti við það tilefni emblubirki í Vinaskógi á … Meira
Fjármagnsgjöld sveitarfélaganna hafa verið á þriðja tug milljarða á ári undangengin tvö ár l Hækkanir útgjalda í fræðslu- og uppeldismálum 18,3 milljarðar kr. á milli síðustu tveggja ára Meira
Einn merkasti fornleifafundur hér á landi var þegar steinkista Páls Jónssonar biskups fannst við uppgröft í Skálholti • Eins og himnarnir hefðu opnast þegar lokinu var lyft af kistunni Meira
Frímúrarabræður á virðulegum aldri safna fé með tæplega mánaðarlangri bifhjólaferð á meginlandinu • Afraksturinn rennur til Reykjadals sem starfrækir sumarbúðir fyrir börn og ungmenni Meira
Afrakstur kertasölu og framlag verslanakeðja til minningar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur, sem jarðsett var föstudaginn 13. september sl., nemur 6.862.725 krónum. Fram kemur í tilkynningu að Anna Björt Sigurðardóttir hafði frumkvæði að framtakinu og … Meira
Skipulagsvinna vegna nýrrar byggðar á Keldnalandi er í fullum gangi. Alþjóðleg samkeppni um þróun svæðisins fór fram í fyrra. Sýning á vinningstillögunni verður opnuð laugardaginn 21. september klukkan 11 í bókasafninu í Spönginni í Grafarvogi Meira
Framkvæmdir við landfyllingu í Skerjafirði hafa talsverða röskun í för með sér • Tengist smíði Fossvogsbrúar • Sérstök aðgæsla verktaka vegna nálægðarinnar við brautarenda flugvallarins Meira
Tímamótunum fagnað með Goslokahátíð Kröflu á Mývatni um helgina • Ný heimildarmynd um Kröfluelda • Tónleikar og vísindasmiðja • Ásgrímur Guðmundsson jarðfræðingur þekkir söguna Meira
Dagana 25. nóvember til 10. desember fer fram sextán daga vitundarvakning á heimsvísu undir heitinu Alþjóðlegir baráttudagar gegn kynbundnu ofbeldi. Frá 2. október til 5. janúar 2025 fer einnig fram Heimsfriðarganga með friði og andofbeldi í þriðja skiptið Meira
Þrjú barnamorð á þessu ári • 20 slík á 150 ára tímabili • Mikil íbúafjölgun undanfarin 20 ár • Félagslegur ójöfnuður og áfengis- og vímuefnaneysla auka ofbeldi • Foreldrar oftast gerendur Meira
Hafnfirðingar vilja lausn á umferðarvanda á Reykjanesbraut við Lækjargötu • Göng undir Setberg framtíðarlausn? Meira
Þarft samtal um geðrækt og geðheilsu • Skemmtun og fundir í bland Meira
Húsgögn úr Biskupsgarði komin í geymslu eftir að húsið var selt • Verður fundinn staður í nýju móttökuhúsnæði biskups • Ómetanlegir munir frá Einari Benediktssyni og Hannesi Hafstein Meira
Kafaði ofan í gríðarlegt magn gagna • Endurtekningin langmikilvægust • Gagnrýnir biblíu markaðsfólks • Viðskiptabókin Good to Great var ákveðin fyrirmynd • Vildi hreinsa hugann með bókarskrifum Meira
Þrjú kínversk herskip, þ. á m. eitt flugmóðurskip, sigldu á milli tveggja japanskra eyja og voru þau einungis 24 sjómílur frá landsvæði Japans þegar næst var. Er þetta í fyrsta skipti sem kínverskt flugmóðurskip siglir svo nærri ströndum Japans, en með því í för voru tveir tundurspillar Meira
Selenskí mun ræða við Biden um leiðir Úkraínumanna til þess að tryggja sigur á Rússum • Úkraínumenn réðust á skotfærageymslu Rússa í Tver-héraði • Bjarminn af eldsvoðanum sást um langa vegu Meira
Ísraelska leyniþjónustan Mossad kom sprengjuhleðslum fyrir í þúsundum símboða, sem pantaðir voru fyrr á þessu ári og dreift til félaga í Hesbolla-samtökunum í Líbanon. Þessar hleðslur voru sprengdar með því að senda sérstök boð í símboðana á þriðjudag Meira
Hjónin Íris Ann Sigurðardóttir ljósmyndari og Lucas Keller kokkur gáfu út matreiðslubókina The Coocoo ' s Nest á dögunum þar sem þau sameinuðu krafta sína og hlúðu að þeim minningum sem þau hafa skapað saman. Meira
„Þegar ég fór að slá túnin var enginn til að segja mér til. Jón Davíðsson, bóndi á Langavatni, hjálpaði mér með greiðuna en ég var of kraftlítill til þess að leggja hana og einhver stirðleiki var á henni Meira