Blaðamenn mbl.is
Sendu ábendingu um frétt á netfrett@mbl.is
eða í
síma 569-1200
Fréttir
Andri Karl hefur skrifað í Morgunblaðið og á mbl.is frá árinu 2000. Í fyrstu sem lausamaður á íþróttadeild blaðsins meðfram námi í Verzlunarskóla Íslands og Háskóla Íslands, en frá árinu 2005 hefur hann helgað sig fréttaskrifum. Andri lagði stund á nám í heimspeki við HÍ og skrifar m.a. um lögreglu- og dómsmál.
Anna Lilja hefur starfað sem blaðamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá árinu 2010, en hefur starfað við fjölmiðla frá 2001. Hún er með MA-próf í blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands og lauk B.Ed-prófi sem grunnskólakennari frá Kennaraháskóla Íslands. Hún skrifar meðal annars um neytendamál, skóla- og uppeldismál og ýmis samfélagsmál.
Egill hefur starfað sem blaðamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá árinu 1993. Egill útskrifaðist með BA-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 1989 og skrifar m.a. um efnahags-, kjara- og landbúnaðarmál á mbl.is.
Guðrún hefur starfað sem blaðamaður og fréttastjóri á Morgunblaðinu og mbl.is frá árinu 1996. Guðrún útskrifaðist með MA-próf í blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands árið 2011 og BA-próf í íslensku og fjölmiðlafræði frá sama skóla árið 1995. Hún skrifar meðal annars um viðskipti og efnahagsmál á mbl.is.
Hjörtur hefur starfað sem blaðamaður á Morgunblaðinu og mbl.is síðan í maí 2010. Hann er sagnfræðingur að mennt (BA) með áherslu á stjórnmálasögu og er með meistaragráðu í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands með áherslu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál. Hann fjallar meðal annars um stjórnmál og alþjóðamál.
Jón Pétur hefur starfað sem blaðamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá árinu 2004. Hann útskrifaðist með BA-próf í bókmennta- og fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands árið 2003 og lauk námi í hagnýtri fjölmiðlafræði ári síðar. Jón Pétur fjallar jafnt um innlend sem erlend fréttamál á mbl.is.
Sigurður Már Jónsson er einn reyndasti viðskiptablaðamaður landsins. Um árabil var hann aðstoðarritstjóri og síðar ritstjóri Viðskiptablaðsins. Hann er jafnframt höfundur nokkurra bóka um viðskipti og athafnalíf og er varaformaður Blaðamannafélags Íslands. Sigurður Már skrifar um viðskipti á mbl.is
Sunna hefur starfað sem blaðamaður á Morgunblaðinu frá árinu 1999. Fréttastjóri á Morgunblaðinu frá 2008 og nú fréttastjóri á mbl.is. Sunna er landfræðingur að mennt.
Una hefur starfað sem blaðamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá árinu 2007. Una er stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík og útskrifaðist með BA-próf í ensku frá Háskóla Íslands árið 2008, að hluta sem skiptinemi í Hamline University í Minnesota í Bandaríkjunum. Haustið 2011 sat hún endurmenntunarnámskeið Norrænu blaðamannamiðstöðvarinnar í Árósum.
Ylfa er með BA-próf í íslensku og fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað á Morgunblaðinu og mbl.is síðan 2007.
Dægurmál
Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála á mbl.is hefur starfað hjá Árvakri frá apríl 2011. Hún hóf blaðamannaferil sinn árið 2001 hjá tímaritaútgáfunni Fróða, var blaðamaður á Fréttablaðinu 2004-2006, ritstjóri Veggfóðurs 2006, ritstjóri Sirkus og Föstudags 2007-2009. Áður en Marta María hóf störf á mbl.is var hún aðstoðarritstjóri Pressunnar.
Íþróttir
Guðmundur hefur verið blaðamaður á íþróttadeild Morgunblaðsins og mbl.is frá árinu 2000 og áður á DV 1989-2000. Guðmundur stundaði nám við Flensborgarskólann og Lögregluskóla ríkisins.
Kristján hefur verið viðloðandi íþróttadeild Morgunblaðsins og mbl.is frá árinu 2000, fastráðinn frá 2010. Hann hefur einnig skrifað fyrir Ský, Ísafold og Viðskiptablaðið. Kristján er með BA-próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Twitter: @KristjanJons
Sindri hefur verið lausamaður á íþróttadeild Morgunblaðsins og á mbl.is meðfram námi frá 2007. Hann útskrifaðist með BS-próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2008 og stundar nú meistaranám í iðnaðarverkfræði við sama skóla. Twitter: @sindrisverris
Skúli Unnar starfaði á Morgunblaðinu 1984-2009. Lengst af á íþróttadeild, en einnig á fréttadeild og mbl.is. Síðan hefur hann verið í hlutastarfi á íþróttadeild. Hann er stjórnmálafræðingur frá HÍ og starfar nú sem söluráðgjafi hjá Norrænu ferðaskrifstofunni.
Stefán hefur skrifað um íþróttir í Morgunblaðið frá 1990, og síðan mbl.is, auk þess að skrifa fyrir tímarit, stýra hverfisblaði og starfa sem fréttaritari fyrir UEFA og tengdar fréttastofur frá 2000. Hann lauk BA-prófi í atvinnulífsfræði frá Háskóla Íslands 2002.
Tómas Þór hefur verið blaðamaður á íþróttadeild Morgunblaðsins og mbl.is frá 2012. Hann stýrði áður íþróttaumfjöllun á DV frá 2008-2012. Twitter: @tomthordarson
Víðir hefur verið blaðamaður á íþróttadeild Morgunblaðsins og mbl.is frá 2000 en var áður á DV 1981, Þjóðviljanum 1982-1987 og DV 1988-2000. Víðir hefur verið umsjónarmaður íþróttadeildar frá 2008.
Twitter: @vidirsig
Ívar hefur verið blaðamaður á íþróttadeild Morgunblaðsins og mbl.is frá 1995. Fyrstu tvö árin í lausamennsku en var fastráðinn 1997. Twitter: @ivarben
Ólafur Már hefur verið blaðamaður á íþróttadeild Morgunblaðsins og mbl.is frá 2010. Ólafur er með BA-próf í fjölmiðlafræði frá Háskólanum á Akureyri.
Twitter: @Olimar9
www.keyrsla.is Sendibílar
Heimsendingar - Búslóðaflutningar - Vörudreifing - fyrirtækjaflutningar. Öflug,G...
SÚKKULAÐIBRÚNIR LABRADOR HVOLPAR
Fyrirhugað er got hjá Valshamars Labrador
Frekari upplýsingar má nálgast á:
...
DÖMUSKÓR
Teg: 7315 Sérlega mjúki og þægi- legir dömuskór...
Breyttar felgur 15" 6 gata f. Toyota eða Patrol t.d.
TS 15" breyttar felgur. Þær eru tæplega 18" breiðar með valsaða kanta frá GJJá...




