Minningar og andlát
Beinar útsendingar frá útförum
Smellið hér til að sjá hvaða útförum verður streymt á netinu í dag.
Sendið póst á minning@mbl.is til að koma á framfæri upplýsingum um netstreymi á útför. Einnig er hægt er að gefa upp streymisslóð um leið og skilað er æviágripi fyrir minningargreinar eða þegar andláts- eða útfarartilkynning er stofnuð.
Birting minningargreina
Samkomubann og óvenjulegar aðstæður í þjóðfélaginu hafa leitt til þess að nú eru í gildi takmarkanir á fjölda gesta við útfarir.
Í ljósi aðstæðna hefur Morgunblaðið rýmkað verklagsreglur sínar varðandi birtingu minningargreina. Ekkert er því til fyrirstöðu að birta minningargreinar sama dag og útför einstaklings er gerð hvort sem hún er háð fjöldatakmörkunum eða gerð í kyrrþey.
Öllum þeim sem kjósa að sýna aðstandendum samúð og samhug býðst pláss fyrir minningargreinar í blaðinu.
Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningargreina.