„Ég er eins og hunangsflugan“

Tómas Tómasson í Hamborgarabúllunni
Tómas Tómasson í Hamborgarabúllunni Árni Sæberg

Á áttræðisaldri er Tómas Tómasson veitingamaður enn með mörg járn í eldinum. Nýverið var opnuð Hamborgarabúlla Tómasar í Nørrebro í Kaupmannahöfn og fram undan er opnun Búllu í Keflavík. Þá verður Búlluappið tekið í notkun á næstunni. Hann settist niður með ViðskiptaMogganum og ræddi um gengi veitingastaða sinna í kórónuveirufaraldrinum, hér heima og erlendis, verslun í miðborginni og mátt trúarinnar í meðlæti og mótlæti.

Við Árni Sæberg ljósmyndari erum búnir með hamborgarana á Búllunni á Bíldshöfðanum og farnir að horfa á klukkuna. Tómas er seinn fyrir. Það kemur í ljós að hann var á æfingu með Ívari Guðmundssyni einkaþjálfara í Laugum. „Ívar var plötusnúður hjá mér á Villta tryllta Villa fyrir 38 árum,“ segir Tómas.

Æfingarnar eru fastur liður hjá Tómasi, eins og sást svo eftirminnilega þegar hann hnyklaði vöðvana ber að ofan á sjötugsafmælinu í fyrra.

Líf hans hefur verið sem rússíbanareið. Nokkrum sinnum hefur gjaldþrot blasað...