Sýna skal aðgát í nærveru góðmenna

Kona að störfum í verksmiðju. Elon Musk komst skemmtilega að …
Kona að störfum í verksmiðju. Elon Musk komst skemmtilega að orði á sínum tíma þegar tröll á Twitter vændi hann um eigingirni, og að hafa orðið milljarðamæringur með því að raka til sín peningum. Musk svaraði að hann væri milljarðamæringur því hann hefði skapað störf fyrir 50.000 manns, og um 250.000 afleidd störf til viðbótar. „Hverju hefur þú áorkað?“ spurði hann á móti. Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja á að felast í því að skapa verðmæti. AFP

Það er æskilegt að fólk reyni að láta gott af sér leiða og hjálpi þeim sem geta enga björg sér veitt – en það er ekki hlutverk fyrirtækja. Er upplagt, nú þegar hátíð ljóss og friðar er handan við hornið, að gera samfélagslega ábyrgð fyrirtækja að umtalsefni og freista þess að herða íslenska stjórnendur í þeirri afstöðu sinni að segja þvert nei við hvers kyns örlæti og umhyggju sem kemur ekki rekstrinum við, og sýna ýtrustu varúð í öllum samskiptum við fólk sem predikar að góðmennska fleyti fyrirtækjum langt. Ebenezer skröggur vissi sínu viti.

Hvað eru nokkrar milljónir á milli vina?

Frétt FT um bandaríska stjórnunargúrúinn Dov Seidman varð kveikjan að þessum skrifum. Seidman á í smávegis basli þessa dagana því ósáttir fjárfestar hafa höfðað mál og segjast hafa verið blekktir þegar hann keypti þá út úr félagi sínu á 1,35 dali á hlut en seldi svo fyrirtækið ári síðar fyrir margfalt hærra verð. Svona viðskipti þættu alla jafna ekkert...