Hótel Trumps eru full af Kínverjum

Xi Jinping skoðar heiðursvörð. Það sem stjórnvöld í Kína vilja …
Xi Jinping skoðar heiðursvörð. Það sem stjórnvöld í Kína vilja er ekki endilega það sem kínverskur almenningur vill. AFP

Nýverið átti ég samtal við agalega skemmtilegan og fróðan mann sem hefur starfað í íslenskum sjávarútvegi um áratuga skeið. Barst talið að því hvernig innflutningsbann Rússa frá árinu 2015 hefur bitnað af miklum þunga á þeim íslensku fyrirtækjum sem veiða og selja uppsjávartegundir. Eins og lesendur muna var ákvörðun Rússa svar við þvingunaraðgerðum 40 ríkja vegna hernaðarbrölts Rússlands á Krímskaga og í austurhluta Úkraínu.

Flest bendir til að af öllum bandalagsþjóðunum hafi innflutningsbann Rússa valdið Íslandi hlutfallslega mestu tjóni og má slumpa á að tap íslensks sjávarútvegs nemi um og yfir 10 milljörðum króna fyrir hvert ár sem Rússlandsmarkaður er lokaður.

Viðmælandi minn vildi meina að reynslan af deilunni við Rússland sýndi að Ísland ætti ekki að skipta sér af alþjóðlegum hitamálum, og að fyrir smáþjóð sem er háð viðskiptum við umheiminn sé gáfulegast að fylgja stefnu hlutleysis og afskiptaleysis. En ég var ekki sannfærður og svaraði eitthvað á þá leið...