„Þetta var mjög skemmtilegt, en þetta voru fyrstu leikirnir okkar frá því að heimsfaraldurinn byrjaði,“ segir Birnir Orri Pétursson, forseti Rugbyfélags Reykjavíkur, en félagið atti kappi við sjóliða af breska herskipinu HMS Enterprise á...
Rugby Leikirnir einkenndust af mikilli vináttu, þótt yfirbragð íþróttarinnar gefi eflaust annað til kynna. Skiptust liðin á að sigra.
Rugby Leikirnir einkenndust af mikilli vináttu, þótt yfirbragð íþróttarinnar gefi eflaust annað til kynna. Skiptust liðin á að sigra. — Morgunblaðið/Óttar Geirsson

„Þetta var mjög skemmtilegt, en þetta voru fyrstu leikirnir okkar frá því að heimsfaraldurinn byrjaði,“ segir Birnir Orri Pétursson, forseti Rugbyfélags Reykjavíkur, en félagið atti kappi við sjóliða af breska herskipinu HMS Enterprise á gervigrasinu við KR-heimilið í gærkvöldi.

Léku liðin tvo leiki og skiptust þau á að sigra. Birnir Orri segir að Rugbyfélag Reykjavíkur hafi áður keppt við sjóliða af herskipum sem hingað hafi komið. Hefur félagið m.a. keppt við franska, kanadíska og breska sjóliða. „Sendiráð þessara ríkja vita af okkur og láta þá áhafnirnar vita ef áhugi er á því að keppa,“ segir Birnir Orri.

„Þetta var góð reynsla og vináttan í fyrirrúmi. Bæði liðin tefldu fram nýjum leikmönnum sem fengu að kynnast íþróttinni,“ segir Birnir. Þá hafi veðrið einnig spilað inn í, en það rigndi hressilega meðan leikirnir fóru fram. „En það gerir hlutina bara skemmtilegri,“ segir Birnir Orri. sgs@mbl.is

...