Anna Gunnlaug Eggertsdóttir fæddist 4. júlí 1928. Hún lést 30. janúar 2019.

Anna Gunnlaug var jarðsungin 7. febrúar 2019.

Elsku amma. Nú sit ég í skjóli nætur með ritföng í hendi reiðubúinn að fanga minningar um þig. Minningarnar eru ótal margar og varla hægt að segja að ein sé sérstakari en önnur því það var alltaf sérstakt að vera í návist þinni. Þú hafðir einstakt lag á að láta manni líða vel en einu skiptin sem þú aðstoðaðir mig við að líða illa var þegar þú fékkst mig til að borða yfir mig, því aldrei virtist ég borða nóg.

Þegar ég var aðeins tveggja ára gamall varstu byrjuð að taka mig með á skíði og skíðaðir með mig milli lappanna þar til ég bar mig sjálfur. Hvorki fyrr né síðar hef ég kynnst eins dugmikilli manneskju og þú varst. Aldrei sastu auðum höndum, enda var alltaf allt fullkomið í kringum þig. Sokkar og nærbuxur voru meira að segja straujuð. Það var ekki nóg með að þú

...