Elín Sigurbjörg Sigurðardóttir fæddist á Dalvík 30. maí 1928. Hún lést á Dalbæ, heimili aldraðra á Dalvík, 28. janúar 2019.

Foreldrar hennar voru hjónin Petrína Þórunn Jónsdóttir ljósmóðir, f. á Dalvík 1891, d. 1974, og Sigurður Þorgilsson, útgerðar- og verkamaður á Dalvík, f. á Sökku í Svarfaðardal 1891, d. 1951. Systkini Elínar: 1) drengur, f. 1919, d. 1920, 2) Þorgils, f. 1921, d. 1998, 3) Kristín Sigríður, f. 1922, d. 2013, 4) drengur, f. 1924, d. 1924, 5) Rósa María, f. 1925, d. 2015, 6) Kristján Þorgils, f. 1930, d. 1940, 7) Jórunn Erla, f. 1932, d. 2004, 8) Sigurveig, f. 1934.

Elín giftist 19. nóvember 1948 Óskari Gunnþóri Jónssyni, f. 19. júlí 1925 á Dalvík, d. 19. janúar 2016, framkvæmdastjóra vöruflutningafyrirtækisins Óskar Jónsson & co. Óskar var sonur hjónanna Jóhönnu Kristínar Þorleifsdóttur f. 1988 á Hóli á Upsaströnd, d. 1971, og Jóns Halldórssonar Lyngstað, f. 1884 á Ystabæ í Hrísey, d. 1963.

...