Ásta fæddist 3. nóvember 1925. Hún lést 29. janúar 2019.

Útför hennar fór fram 8. febrúar 2019.

Stolt, ákveðin, glæsileg og hrífandi elsku amma okkar er látin 93 ára að aldri.

Sem krakkar í Brekkugötu hlupum við oft yfir til ömmu og afa og elskuðum að hafa þau nærri. En fyrstu búskaparár mömmu og pabba voru í Brekkugötu 3, í bakhúsinu hjá þeim. Líf og fjör einkenndi árin okkar á Brekkugötu þar sem pabbi var að vinna við verslun á neðstu hæðinni ásamt afa og bræðrum sínum. Fjölskyldan safnaðist oftast saman á Brekkugötu daglega og samgangur því mikill milli frændsystkina þar sem leikvöllurinn var Brekkugata 3 og nánasta umhverfi. Kvöldkaffi, kjötfars á öllum tímum eiga sterka minningu tengda ömmu sem okkur þykir vænt um.

Amma var sérstök kona sem var einstaklega glæsileg. Það sem hún tók alltaf eftir þegar þú hittir hana var hvernig þú varst til fara, og sagði hún þér

...