Ingiberg Jónas Hannesson fæddist í Hnífsdal 9. mars 1935. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík 7. apríl 2019.

Foreldrar hans voru Hannes Guðjónsson, sjómaður og verkamaður í Hnífsdal og síðar á Akranesi, f. 19.4. 1898, d. 1.2. 1977, og Þorsteina Guðjónsdóttir, húsmóðir og verkakona í Hnífsdal og síðar á Akranesi, f. 30.10. 1907, d. 10.4. 1991. Systkini hans eru Pálína Guðrún, f. 10.8. 1936, d. 29.5. 1938, Páll Guðjón, f. 15.10. 1939, Hansína, f. 16.1. 1942, Anna, f. 16.11. 1945, og Aðalsteinn Björn, f. 1.9. 1948, d. 14.6. 1972.

Ingiberg kvæntist 7.9.1957 Helgu Steinarsdóttur frá Ísafirði, f. 20.5. 1934. Foreldrar hennar voru Steinar Steinsson, skipasmíðameistari og skipaeftirlitsmaður á Ísafirði, f. 4.10. 1905, d. 22.8. 1967, og Elísabet Halldórsdóttir húsmóðir, f. 10.12. 1900, d. 11.10. 1986. Börn Ingibergs og Helgu eru: 1) Birkir, f. 5.11. 1954, eiginkona Sigurveig Þóra Guðjónsdóttir, f. 28.7. 1955. Börn þeirra eru:

...