Guðlaugur Ingimundarson fæddist í Hjarðarnesi á Kjalarnesi 24. október 1940. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 2. apríl 2019.

Foreldrar hans voru Ingimundur Bjarnason, f. 27. nóvember 1919, d. 25. ágúst 1989, og Guðrún Guðlaugsdóttir, f. 3. september 1920, d. 17. desember 2005. Þau eignuðust fjögur börn; Báru, f. 1939, d. 1992, Guðlaug, f. 1940, Ingu, f. 1945 og óskírða stúlku, f. 1945, d. sama ár.

Hinn 22. nóvember 1963 kvæntist Guðlaugur Sigríði Þ. Sigurmundsdóttur, f. 1941. Þau slitu samvistum 1991. Þau eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Linda, f. 1964, hennar börn eru Signý, f. 1987, hennar maki er Ragnar Þór Risten og þeirra dóttir er Friðdís Eir, f. 2017, Valgerður, f. 1993, og Páll, f. 1996. Maki Lindu var Gestur Pálsson, þau skildu. 2) Guðrún, f. 1966, gift Garðari Helga Magnússyni og eru þeirra börn Bjarki Dan, f. 1990, og Sindri Dan, f. 1993. 3) Guðlaugur Ingi, f. 1977, sambýliskona hans er Manuela Magnúsdóttir og

...