Ólafur Björgvin Valgeirsson fæddist 20. janúar 1955 á Akureyri. Hann andaðist á heimili sínu 6. apríl 2019.

Ólafur var sonur Helgu Bjargar Jónsdóttur frá Þorvaldsstöðum í Breiðdal, d. 1. apríl 2010, og Valgeirs Eiríkssonar frá Gestsstöðum í Fáskrúðsfirði, d. 20. október 1973. Helga Björg og Valgeir slitu samvistum.

Systkini Ólafs voru sjö talsins: Hafliði Már, látinn, Margrét Jenný, látin, Guðjón Smári, Valgerður Heba, óskírður, látinn, óskírður, látinn, og Karólína Ósk, úr síðara hjónabandi Valgeirs.

Ólafur lætur eftir sig eiginkonu, Jónu Benediktu Júlíusdóttur. Þau kynntust haustið 1977 og gengu í hjónaband 1983. Börn þeirra eru: 1) Júlíanna Þórbjörg, f. 10. apríl 1981, maki Thorberg Einarsson. Börn þeirra eru Benedikt Blær Guðjónsson, Einar Ólafur Thorbergsson, Ísabella Eir Thorbergsdóttir og Aron Daði Thorbergsson. 2) Rannveig Hrund Ólafsdóttir, f. 26. september 1985, maki er Ómar Magnússon. Börn þeirra eru

...