Ágúst Ingi Jónsson

aij@mbl.is

Átak verður gert í mælingu á veiðistofni loðnu í næstu viku er sex skip verða við loðnumælingar. Skipin halda væntanlega út síðdegis á sunnudag eða þegar veðrinu slotar. Guðmundur J. Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar, segist ekki minnast þess að áður hafi svo mörg tekið þátt í loðnumælingu samtímis.

Rannsóknamenn um borð

Auk rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar taka Aðalsteinn Jónsson SU, Heimaey VE, Hákon EA, Börkur NK og grænlenska skipið Polar Amaroq þátt í mælingunni. Tveir til þrír rannsóknamenn frá Hafrannsóknastofnun verða um borð í hverju veiðiskipanna en leiðangursstjóri er Birkir Bárðarson fiskifræðingur.

Ráðgert er að Hákon byrji leit á Grænlandssundi og Heimaey á Vestfjarðamiðum. Hin skipin byrji við Langanes og vinni sig vestur á bóginn, en Árni Friðriksson hefur síðustu daga mælt loðnu

...