Bergþóra Þorkelsdóttir
Bergþóra Þorkelsdóttir

Óumdeilt er að yfirlögn á vegarkafla á Kjalarnesi, þar sem banaslys varð á sunnudag, hafi ekki uppfyllt kröfur Vegagerðarinnar. Þetta segir Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, spurð að því hvort verktakinn sem lagði yfirlögnina á vegarkaflann væri ósammála því mati stofnunarinnar að hann hefði ekki staðist kröfur.

Bergþóra fundaði með verktökunum í gær og átti einnig fund með mótorhjólamönnum, en banaslysið varð þegar mótorhjól og húsbíll skullu saman.

Á vegarkaflanum sem slysið varð á var nýtt malbik sem var afar hált og stóðst ekki kröfur Vegagerðarinnar.

Nú á að leggja nýja yfirlögn á kaflann en sami verktaki mun annast það verk og lagði hálu yfirlögnina. 2