Loftbrúin Langflestir hafa bókað flug með Air Iceland Connect.
Loftbrúin Langflestir hafa bókað flug með Air Iceland Connect. — Morgunblaðið/Árni Sæberg

Á áttunda hundrað flugleggir voru bókaðir með afsláttarkóða Loftbrúar fyrstu viku verkefnisins, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. „Samtals hefur það sparað íbúum landsbyggðarinnar tæpar fimm milljónir króna,“ segir þar.

Loftbrú veitir 40% afslátt til þeirra sem eiga lögheimili á landsbyggðinni fjarri höfuðborgarsvæðinu og á eyjum án vegasambands. Undir Loftbrú falla Vestfirðir, hluti af Norðurlandi vestra, Norðurland eystra, Austurland, Hornafjörður og Vestmannaeyjar. Svæðið er afmarkað með tilliti til póstnúmera. Alls ná afsláttarkjör Loftbrúar til rúmlega 60 þúsund íbúa á þessum svæðum.

Markmiðið með verkefninu er að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að miðlægri þjónustu og efla byggðir með því að gera innanlandsflug að hagkvæmari samgöngukosti.

Fyrstu vikuna bókuðu rúmlega 700 hjá manns fluglegg hjá Air Iceland Connect og um 30 hjá Erni. Meðalverð á fluglegg með afslættinum er um 16.600 krónur.

...