Ríkiskaup fyrir hönd Vegagerðarinnar hafa boðað til opinnar hönnunarsamkeppni um útlit og hönnun brúar yfir Fossvog. Bygging brúarinnar er samstarfsverkefni Kópavogsbæjar, Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar.

Þetta er í annað skiptið sem efnt er til útboðsins. Áður var efnt til útboðs seinni hluta árs 2019 og í janúar 2020 var tilkynnt um val þátttakenda í forvali samkeppninnar, sex teymi alls. Í júlí sama ár felldi kærunefnd útboðsmála valið úr gildi og taldi að skilmálar hins kærða forvals hefðu ekki samrýmst meginreglum laga um opinber innkaup. Því þurfti að hefja útboðsferlið upp á nýtt með tilheyrandi töfum. Samkvæmt drögum að tímalínu fyrir keppnina, sem birt voru í desember sl., var áætlað að hún yrði auglýst í ársbyrjun 2021 og tilboð opnuð 28. febrúar. Sú tímalína stóðst ekki.

Brú yfir Fossvog er ætluð fyrir gangandi, hjólandi og umferð almenningsvagna (borgarlínu) yfir Fossvog, frá flugbrautarenda Reykjavíkurflugvallar

...