Reynslubolti Ragnar Freyr Ingvarsson er enginn nýgræðingur í eldhúsinu og því má búast við miklu með haustinu.
Reynslubolti Ragnar Freyr Ingvarsson er enginn nýgræðingur í eldhúsinu og því má búast við miklu með haustinu. — Morgunblaðið/Eggert

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Matarvefs mbl.is er Ragnar Freyr Ingvarsson, betur þekktur sem Læknirinn í eldhúsinu, í óða önn að taka upp nýja matreiðsluþætti og setja saman nýja bók sem vænta má með haustinu.

Að sögn þeirra sem til þekkja mun Ragnar ekki spara tilþrifin fremur en fyrri daginn og því ljóst að aðdáendur hans eiga góða tíma í vændum. Sjálfur verst Ragnar allra frétta enda ekki tímabært að greina um of frá verkunum en hann mun fyrstur manna færa okkur fregnir þegar nær dregur.