Hjúkrunarrými Bregðast verður við löngum biðlistum eftir plássi.
Hjúkrunarrými Bregðast verður við löngum biðlistum eftir plássi. — Morgunblaðið/Árni Sæberg

Ljóst er að ráðast þarf í heildstæða skoðun á öldrunarþjónustu þar sem jafnframt er litið til annarra úrræða en hjúkrunarrýma, að því er segir í samantekt embættis landlæknis um bið eftir hjúkrunarrými. Sú vinna er að hefjast og verður þjónusta við vaxandi hóp aldraðra til umræðu á næsta heilbrigðisþingi. Stefnt er að því að opna ný hjúkrunarrými á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Vestfjörðum og fagnar embættið þeirri áætlun.

Á fyrsta degi ársins 2021 voru 453 manns á biðlista eftir varanlegri dvöl í hjúkrunarrými en fjöldinn var 404 í upphafi árs 2020. Heldur fækkaði á biðlista á öðrum ársfjórðungi 2020 samanborið við árin á undan en þá var að meðaltali 321 skráður á biðlista. Þegar líða tók á árið jókst fjöldinn aftur og á síðasta ársfjórðugi ársins 2020 var meðalfjöldinn kominn upp í 457 manns.

Í framkvæmdaáætlun heilbrigðisráðuneytisins til ársins 2025 er stefnt að því að opna 350 ný hjúkrunarrými á höfuðborgarsvæðinu.

...