Að undanförnu hefur verið unnið að hönnun Káratorgs sem er á mótum Frakkastígs, Njálsgötu og Kárastígs á Skólavörðuholti.
Deild borgarhönnunar hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar hefur unnið að hönnuninni ásamt ráðgjöfum Landmótunar.
„Káratorg fær nýja ásýnd sem notendavænt, fallegt og gróðursælt hverfistorg fyrir alla aldurshópa með sérstakri áherslu á yngstu börnin,“ segir í frétt frá borginni.
Káratorg var einu sinni lagt undir bílastæði en hefur verið svokallað Torg í biðstöðu-verkefni frá árinu 2014. „Í gegnum það verkefni hefur torgið sannað sig sem mikilvægt hverfistorg fyrir íbúa og gesti miðborgarinnar og hefur nýting þess aukist ár frá ári,“ segir í fréttinni.
Kaffihús, bakarí og verslanir eru þar og stutt í Hallgrímskirkju.
Verkhönnun fer fram í vetur en þá verður kafað dýpra í hönnun torgsins hvað varðar hæðarlegu, halla, lagnir, götugögn, gróður
...