Bylting Rafvæðing bílaflotans hefur verið á mikilli siglingu, m.a. fyrir tilstilli ívilnana af hálfu hins opinbera.
Bylting Rafvæðing bílaflotans hefur verið á mikilli siglingu, m.a. fyrir tilstilli ívilnana af hálfu hins opinbera. — Morgunblaðið/Ófeigur

Um nýliðin áramót hækkuðu tengiltvinnbílar í verði um tæpa hálfa milljón vegna þverrandi stuðnings stjórnvalda við kaupendur slíkra bíla. Hagstofan gefur ekki upp hversu þungt slíkir bílar vega við útreikning á vísitölu neysluverðs en bifreiðakaup standa þó undir tæpum 5% af heildarkörfunni sem lögð er til grundvallar við mat á verðhækkunum.

Tölur Hagstofunnar sýna að bifreiðaverð hefur haft hverfandi áhrif á hækkandi verðbólgu á síðasta ári en það gæti nú breyst, enda tæpur þriðjungur allra nýskráninga á bílamarkaði í tengslum við innflutning tengiltvinnbíla. 18