Jóhannes Þór Skúlason
Jóhannes Þór Skúlason

Bókunarstaða í ferðaþjónustunni er mjög góð og fyrirtækin nokkuð ánægð með stöðuna. Þetta segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF). Eftirspurnin í febrúar og mars hafi verið mjög góð. „Þetta lítur allt saman nokkuð vel út fyrir næstu tvö ár,“ segir Jóhannes en komutölur nú eru svipaðar og fyrir Covid-19 á þessum tíma árs. Kannanir meðal ferðamanna sýna mikla ánægju þeirra. » 10 og 28