Guðni Kristinn Sigurðsson fæddist 9. desember 1938. Hann lést á heimili sínu 22. mars 2018. Guðni var sonur Jónu Sigurveigar Vilborgar Jónsdóttur ljósmóður, f. 2. október 1902, d. 7. nóvember 1970, og Sigurðar Marteinssonar, bifreiðastjóra hjá Hreyfli, f. 8. mars 1899, d. 16. ágúst 1977. Systur Guðna eru Ágústa, f. 20. mars 1930, d. 10. nóvember 2014, og Elsie, f. 25. maí 1936.

Eftirlifandi maki Guðna Kristins til 62 ára er Kristiana Kristjánsdóttir, f. 24. janúar 1937. Synir Guðna og Kristiönu eru: 1) Kristján Henry, f. 5. mars 1958, hann á eitt barn með Birnu Lúðvíksdóttur, f. 4. maí 1957, Kristíönu, f. 27. janúar 1982. Hún býr í Færeyjum ásamt sambýlismanni sínum, Marner Bech, f. 23. janúar 1985. 2) Heiðar Þór, f. 14. nóvember 1959, maki Katrín N. Jónsdóttir, f. 8. september 1971. Þau eiga saman tvö börn, Aron Breka, f. 12. janúar 1998, og Anitu Björk, f. 19. ágúst 2004. 3) Agnar Jón, f. 21. júní 1966, hann á þrjú börn með Ástríði Elínu Jónsdóttur, f.

...