Maximilian Helgi Ívarsson fæddist 15. október 2008 í Reykjavík. Hann lést 8. september 2020. Foreldrar hans eru Joanna Marcinkowska og Ívar Erlendsson. Systkini hans eru Tinna, Alexandra Helga og Stefan Erlendur. Móðuramma heitir Ewa Marcinkowska og móðurafi heitir Stefan Marcinkowski. Föðuramma hét Helga Ívarsdóttir og föðurafi hét Erlendur Hilmar Björnsson. Maximilian var nemandi í Sjálandsskóla, æfði karate og lærði að spila á gítar.

Útför hans fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 18. september 2020, klukkan 13.

Elsku besti Maxi okkar. Það er þyngra en tárum taki að skrifa þessi kveðjuorð. Það fyrsta sem kemur upp í hugann er þakklæti.

Þakklæti fyrir að hafa fengið að fylgja þér í þann stutta tíma sem þú varst með okkur og njóta þinnar yndislegu nærveru, því manni leið alltaf einstaklega vel í þinni návist.

Minningarnar eru óteljandi. Sú fyrsta er dagurinn sem þú

...