Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

„Heimavinna er hin nýja heimsmynd,“ segir Ólafur Gauti Hilmarsson kerfisfræðingur. Hann lauk á dögunum námi í verkefnastjórnun og lokaverkefni hans var að kanna áhrif Covid-19 á störf og vinnulag stjórnenda og starfsfólks fyrirtækja á Íslandi. Á mörgu er tæpt í ritgerð um málið og niðurstaða Ólafs er að vinnumarkaðurinn muni breytast varanlega eftir reynslu síðustu mánaða. Sveigjanleiki í starfi verði meiri og hefðbundnar tímaskráningar verði ekki jafn mikilvægar og áður. Fjarvinna, fjarvinnulausnir og fjarfundir verði algengari. Góður tæknibúnaður þurfi þó að vera til staðar. Einkenni yfirstandandi ástands er þó, að mati viðmælenda Ólafs, aðlögunarhæfni og samstaða fólks sem margt hefur verið í langvarandi einangrun sé mikil.

Skref inn í nýjan veruleika

„Að fenginni reynslu af kórónuveirunni í ár tel ég fjarvinnu þurfa lengri tíma til að

...