Öflug Isabella Ósk Sigurðardóttir, fyrir miðju, tók 22 fráköst fyrir Blika.
Öflug Isabella Ósk Sigurðardóttir, fyrir miðju, tók 22 fráköst fyrir Blika. — Morgunblaðið/Íris

Keflavík er áfram eina taplausa liðið í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik, Dominos-deildinni, eftir sigur á Fjölni, 72:60, á laugardaginn. Nýliðar Fjölnis töpuðu öðrum leiknum í röð eftir að hafa unnið fyrstu þrjá í haust.

Katla Rún Garðarsdóttir skoraði 18 stig fyrir Keflavík og Ariel Hearn 17 fyrir Fjölni.

*Isabella Ósk Sigurðardóttir tók 22 fráköst fyrir Breiðablik sem fékk sín fyrstu stig með sigri á KR í Vesturbænum, 73:58. Annika Holopainen skoraði 20 stig fyrir KR og tók 17 fráköst.

*Keira Robinson skoraði 30 stig fyrir Skallagrím og Sanja Orozovic 26 í sigri gegn Snæfelli, 85:80, í Vesturlandsslag í Borgarnesi. Haiden Palmer var með 29 stig og þrefalda tvennu fyrir Snæfell.

*Helena Sverrisdóttir skoraði 20 stig og tók 12 fráköst fyrir Val á sínum gamla heimavelli þegar Hlíðarendaliðið vann Hauka, 74:64, á Ásvöllum þegar umferðinni lauk í fyrrakvöld. vs@mbl.is

...