Eftir Þóri Stephensen: „Systkini segi ég, af því að í dag vita allir sem vilja þekkja sannleikann í þessum málum, að samkynhneigð er meðfædd.“
Þórir Stephensen
Þórir Stephensen

Fréttir hafa borist af því að gagnkynhneigðir einstaklingar hér á landi séu enn einu sinni að verða sér til skammar með því að úthrópa og níða samkynhneigð systkini sín. Systkini segi ég, af því að í dag vita allir sem vilja þekkja sannleikann í þessum málum, að samkynhneigð er meðfædd. Þar með er hún sköpun Guðs og hún á öll sama rétt. Við getum ekki kallað okkur jafnréttissinna nema þetta fylgi með. Það er stór hluti af lífshamingjunni að elska og elskast. Samkynhneigðum er meðfætt að elskast með öðrum hætti en við gagnkynhneigðir gerum. Í því liggur hin úrelta hneykslun. En raunverulega eru þetta nánast tvær hliðar á sama peningi og báðar eru þær sömu ættar og því jafngildar.

Ungt fólk, sem er að uppgötva samkynhneigð sína, á margt í erfiðleikum vegna samfélagsins og jafnvel fjölskyldu sinnar. Á þessu tímaskeiði er það oft veikt fyrir andlega séð og þolir þá illa hið heimskulega aðkast sem það verður fyrir og þá illgirni, sem oft fylgir og

...