Þorsteinn Már Baldvinsson
Þorsteinn Már Baldvinsson

Skatturinn ­hefur ­nú lokið ítarlegri úttekt á rekstri Samherja og tengdra félaga á tímabilinu 2012-2018. Niðurstaða úttektarinnar er að ekkert saknæmt hafi átt sér stað í rekstri félaga innan samstæðu Samherja. Að frumkvæði Skattsins hefur Samherji gengist undir sátt og greiðir 230 milljónir króna auk vaxta vegna endur­álagningar og sektar, eða innan við 1% af heildarskattskilum félaga innan samstæðunnar á umræddu tímabili.

Samhliða þessu hefur embætti héraðssaksóknara fellt niður sakamálarannsókn á hendur félaginu og stjórnendum þess. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir að sér sé létt vegna niðurstöðunnar.