Ingi Stein Agnarsson fæddist á Hjalteyri 17. mars 1961. Hann lést á heimili sínu, Sléttuvegi 7 í Reykjavík, 29. janúar 2023.

Foreldrar hans eru Agnar Þórisson frá Hjalteyri, f. 13.8. 1925, d. 28.11. 2005, og Sigríður Gunnlaug Gísladóttir frá Grímsgerði, f. 18.5. 2026, d. 13.6. 1974.

Systkini hans eru Aðalsteinn, f. 7.3. 1951, Gísli Þór, f. 26.8. 1955, d. 2.1. 2008, Jórunn Kolbrún, f. 6.12. 1956, Þórey, f. 25.2. 1960, Þórir Páll, f. 4.6. 1964, og Gissur Agnar, f. 29. 6. 1966.

Útför Inga Steins fer fram frá Möðruvallakirkju í Hörgárdal í dag, 13. febrúar 2023, klukkan 13.

Elsku Ingi frændi minn, það er sárt að þurfa að kveðja þig, það voru forréttindi að kynnast manni eins og þér, alger öðlingur, alger baráttunagli, viskubrunnur. Ég hafði gaman af heimsóknunum mínum til þín, okkur leiddist nú ekki að tala eða slúðra, þú varst alltaf með puttann á púlsinum hvað...