Verðlaun Snævar Sölvason leikstjóri og Kristján Jónsson handritshöfundur tóku við viðurkenningunni af Ómari Smárasyni frá KSÍ fyrr í vikunni.
Verðlaun Snævar Sölvason leikstjóri og Kristján Jónsson handritshöfundur tóku við viðurkenningunni af Ómari Smárasyni frá KSÍ fyrr í vikunni. — Ljósmynd/KSÍ

Sjónvarpsþættirnir Skaginn hljóta fjölmiðlaverðlaun Knattspyrnusambands Íslands fyrir árið 2023. Þættirnir eru heimildarþættir um lið ÍA sem vann einstakt afrek í íslenskri knattspyrnusögu þegar það varð Íslandsmeistari karla fimm ár í röð á árunum 1992-1996.

Snævar Sölvason er leikstjóri þáttanna og handritið skrifar Kristján Jónsson.

Hannes Þór Halldórsson er framleiðandi þáttanna. Í þáttunum, sem voru fimm talsins, einn fyrir hvert ár, var rætt við þjálfara, leikmenn, andstæðinga, stjórnarmenn, stuðningsfólk og fjölmiðlafólk um liðið og þennan tíma og þar er varpað nýju og áður óþekktu ljósi á þetta ótrúlega afrek.

KSÍ veitir árlega ýmsar viðurkenningar í aðdraganda ársþings KSÍ og á ársþinginu sjálfu eftir atvikum.