Hægt hefur gengið í kjaraviðræðum tollvarða við samninganefnd ríkisins og er nú til umræðu innan Tollvarðafélags Íslands að vísa endurnýjun aðalkjarasamnings í gerðardóm. Guðbjörn Guðbjörnsson, formaður félagsins, segir tollverði hafa dregist mikið…

Hægt hefur gengið í kjaraviðræðum tollvarða við samninganefnd ríkisins og er nú til umræðu innan Tollvarðafélags Íslands að vísa endurnýjun aðalkjarasamnings í gerðardóm. Guðbjörn Guðbjörnsson, formaður félagsins, segir tollverði hafa dregist mikið aftur úr í launum gagnvart öðrum stéttum á umliðnum árum. Útreikningar bendi til að tollverðir hafi dregist aftur úr öðrum opinberum starfsmönnum um í kringum 10% í launum á undanförnum árum. „Þar sem við erum ekki með verkfallsrétt þá höfum við hug á að skoða þetta frekar en það er ekki búið að taka endanlega ákvörðun um það,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið.

Samkvæmt bókun við kjarasamning tollvarða er unnt að fara fram á að gerðardómur úrskurði um laun þegar samanburður við aðra hópa er orðinn óhagstæður og hefur tollvarðafélagið fengið álit frá Hagfræðistofnun sem rökstyður og undirbyggir að þeir hafi á réttu að standa að

...