Eftir Þorstein Siglaugsson: „Stærsta fréttin er þó sú að tvíbólusettir eru nú næstum tvöfalt líklegri til að smitast en óbólusettir.“

Eftir 20. desember tóku tölur um 14 daga nýgengi smita af Covid-19 eftir bólusetningarstöðu mjög óvænta stefnu. Þegar þetta er ritað hafa smit fullbólusettra fullorðinna með örvun á hver 100 þúsund ríflega ellefufaldast og smit tvíbólusettra fullorðinna sjöfaldast. Á sama tíma hafa smit óbólusettra aðeins 2,6-faldast. Meðal barna sjáum við sömu breytingu, smit fullbólusettra tæplega tífaldast meðan smit meðal óbólusettra 2,4-faldast.

Það er ekki auðvelt að skýra þennan viðsnúning með hegðun, svo skyndileg og afgerandi hegðunarbreyting milli hópa er útilokuð. Ekki er heldur líklegt að ásókn í skimun hafi skyndilega stóraukist meðal sumra hópa en ekki annarra. Við vitum að smitvörn bóluefnanna dvínar hratt, en að hún hverfi svo skyndilega er útilokað. Líklegasta skýringin er hið nýja Ómíkron-afbrigði veirunnar. Erlend gögn benda líka til að þau bóluefni sem við höfum nú yfir að ráða hafi lítil sem engin áhrif á hvort fólk smitast af því.

...