Þvílíkur spenningur, ég gargaði af gleði

„Ég er rosalega bjartsýnn núna. Og spenntur fyrir lífinu. Mér …
„Ég er rosalega bjartsýnn núna. Og spenntur fyrir lífinu. Mér líður eins og ég sé tvö hundruð kílóum léttari; það er þvílík byrði sem hefur verið tekin af mér,“ segir Böðvar Sturluson sem fékk nýtt nýra fyrir hálfum mánuði. Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir

Böðvar Sturluson byrjaði að veikjast árið 2015, þá 32 ára gamall. Tveimur árum síðar kom í ljós hvað hrjáði unga manninn en Böðvar reyndist vera með ólæknandi nýrnasjúkdóm. Næstu ár voru nýrun smátt og smátt að gefa sig og ljóst var að hann þyrfti nýtt nýra. Biðin tók enda fyrir hálfum mánuði þegar Böðvar fékk nýra og þar með nýtt líf. 

Böðvar tekur brosandi á móti blaðamanni í íbúð foreldra sinna í Vesturbæ. Hann má sannarlega brosa út að eyrum því margra ára þjáning er að baki og framtíðin er björt, en Böðvar er nú einu heilbrigðu nýra ríkari. Böðvar er enn að jafna sig en furðuhress og býður upp á kaffi. Það er ekki að sjá á honum að hann hafi legið á gjörgæslu fyrir tíu dögum eftir stóra aðgerð.

Böðvar hefur verið veikur meira og minna í sex ár þótt hann hafi reynt að láta á engu bera og staðið sína plikt í vinnu. En nú horfir til betri vegar og Böðvari líður vel. Hann hlakkar mikið til að geta tekið fullan þátt í lífinu með konu sinni Tinnu...