Ekkert fær stöðvað Whitney
Einhvern veginn virðist það hafa farið alveg framhjá íslenskum fjölmiðlum að bandaríski frumkvöðullinn Whitney Wolfe Herd vann meiriháttar afrek í febrúar síðastliðnum þegar hún skráði á markað fyrirtækið Bumble sem rekur samnefnt stefnumótaforrit.
Með skráningunni varð hún nefnilega yngsta kona sögunnar til að skrá félag á hlutabréfamarkað – í það minnsta í Bandaríkjunum – og einnig yngsta konan til að komast á milljarðamæringalista Bloomberg á eigin spýtur.
Whitney er hrífandi, bráðsnjöll og með bein í nefinu – og löngu tímabært að íslenskir lesendur fræðist um sögu hennar.
Áreitnin kveikti á peru
Leiðin á toppinn var alls ekki áfallalaus. Whitney, sem verður 32 ára í júlí, ólst upp í Salt Lake City og stundaði háskólanám við South Methodist University. Þar fór viðskiptavitið að láta á sér kræla því í náminu tók Whitney til við að selja handtöskur úr bambusvið til stuðnings fólki sem orðið hafði fyrir tjóni...