Bakarí í Maine undir íslenskum áhrifum

Vail-fjölskyldan hjálpast að við reksturinn. Til hægri á myndinni er …
Vail-fjölskyldan hjálpast að við reksturinn. Til hægri á myndinni er Íris Björk, við hlið hennar eru tengdaforeldrar hennar, Jenniffer Duffy-Vail og Charlie Vail, og neðst á myndinni er mágkona hennar Hannah Vail.

Íris Björk Óskarsdóttir-Vail er íslenskur bakari búsett í Dover-Foxcroft í Maine í Bandaríkjunum. Þar rekur hún ásamt eiginmanni sínum og tengdafjölskyldu bakarí sem selur meðal annars íslenskar kleinur, ostaslaufur og sérbökuð vínarbrauð.

Fædd og uppalin fyrir norðan

Íris er fædd og uppalin á kúabúinu Dæli í Skíðadal fyrir norðan. 24 ára hóf hún bakaranám í MK og árið 2014 varð hún fyrst kvenna til að fara með sigur af hólmi í keppninni um Köku ársins sem haldin er af Landssambandi bakarameistara.

Vann hún síðan sem yfirbakari hjá 17 sortum þangað til hún flutti út til Maine eftir að hún trúlofaðist kærasta sínum. Hefur hún verið búsett þar síðan.

Starfaði Íris til að byrja með sem bakari hjá bakaríinu Spruce Mill Farm and Kitchen. Þegar þeim rekstri var lokað nú í mars brá tengdafaðir hennar á það ráð að stofna fjölskyldubakaríið Vail‘s Custom Cakes and Bakery og vildi hann að Íris sæi um baksturinn.

Að sögn...