Unga fólkið vill ekki streða

Mynd úr safni af glaðbeittum nemendum FB að dimittera. Er …
Mynd úr safni af glaðbeittum nemendum FB að dimittera. Er lífið ekki betra í tígrisdýrsbúningi en í jakkafötum? Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson

Það er tímabært að ljóstra því upp við lesendur að það er ellefu ára aldursmunur á mér og honum Youssef mínum sem af og til bregður fyrir í pistlunum sem ég skrifa. Aldursbilið kemur ekki að sök – amor omnia vincit eins og Rómverjarnir sögðu. Fyrir mína parta dregur aldursmunurinn stórlega úr líkunum á að ég finni einhvern tíma hjá mér þörf fyrir að yngja upp og Youssef virðist bara verða hrifnari af mér eftir því sem gráu hárunum í skegginu fjölgar.

En Youssef var enn í menntaskóla þegar við kynntumst fyrir röskum áratug og eitt af því sem ég hafði áhyggjur af var að ég hafði enga hugmynd um hvernig þessi ómótstæðilega kynbomba myndi standa sig á vinnumarkaði. Var ég kannski að binda mitt trúss við mann sem nennti ekki að vinna og kynni ekki að láta hendur standa fram úr ermum? Eru ekki yngri kynslóðirnar þekktar fyrir að vera latar og tilætlunarsamar teprur?

Lesendur geta rétt ímyndað sér hvað mér var létt þegar Youssef landaði sínu fyrsta starfi...