Ég er ótrúlega þakklátur

„Það er ekki meðvituð ákvörðun að vera einlægur og hreinskilinn. …
„Það er ekki meðvituð ákvörðun að vera einlægur og hreinskilinn. Þetta snýst meira um að segja satt. En á sama tíma hef ég algjört frelsi að búa eitthvert andrúmsloft til. En lögin eru flest undir áhrifum frá mínu lífi og því sem er í gangi í kringum mig,“ segir Birnir Sigurðarson rappari. Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir

Við mætumst í þröngu og skrautlegu anddyri hipsterakaffihússins Babalú á Skólavörðustíg og heilsumst. Birnir Sigurðarson er mættur í rauðri hettupeysu, snöggklipptur með hárið litað í hinum ýmsu litum, aðallega skærljósgrænum. Það fer honum vel. Við finnum okkur borð þar sem skvaldrið er minnst og ræðum um lífið og tilveruna, neyslu og edrúmennsku, en fyrst og fremst tónlistina sem Birnir brennur fyrir.

Lét segulóma heilann

Bushido er nýjasta plata rapparans vinsæla, en hún kom út fyrir nokkrum vikum.

„Ég hef fengið góðar viðtökur og það er búið að hlusta á hana um milljón sinnum, sem er flott,“ segir hinn 25 ára gamli Birnir.

Flott hárið á þér!

„Takk, ég er mikill aðdáendi Dennis Rodman en svo var þetta líka gert í takt við plötuumslagið sem er mynd úr segulómun af heilanum mínum. Þetta var hugmynd sem Þórsteinn Sigurðsson vinur minn kom með en hann sá um myndefnið við nýju plötuna. Þannig að...