Covid-föst í Króatíu

Eva Hrönn kynntist Antun Jarič, eða Tunjo eins og hinir …
Eva Hrönn kynntist Antun Jarič, eða Tunjo eins og hinir innfæddu nefna hann dags daglega, á kaffihúsinu Pandora í smáþorpinu Sikirevci í Króatíu, skammt frá landamærunum við Bosníu, þótt vonandi hafi hún þar með ekki opnað hina frægu öskju Pandóru sem segir af í goðafræði Forn-Grikkja. Ljósmynd/Aðsend

„Hér er mjög mikil samheldni, fólk kemur saman við heimaslátrun og annað og það er alveg magnað að fylgjast með fólkinu hérna,“ segir Eva Hrönn Árna Jóhannsdóttir, fertugur Hafnfirðingur, en líka að hluta Skagakona og Reykvíkingur, og lýsir því sem fyrir augu ber í króatíska þorpinu Sikirevci, í Austur-Slavoniuhéraði þar í landi, skammt frá landamærunum við Bosníu.

Aðstæður Evu Hrannar verða að teljast sérstakar, auðvitað að hluta til vegna kórónuveirunnar, en hún hefur setið föst í Króatíu frá því í sumar, í heimsókn sem hófst 4. ágúst og átti aðeins að standa í þrjár vikur. Engin leið hefur verið að fá flug til Íslands frá neinum flugvelli nálægt Evu síðan í ágúst sem er þó ekki eina ástæðan fyrir að hún ílengdist.

Ástin kviknaði

Örlögin gripu nefnilega í taumana þegar ástin kviknaði óvænt, en Eva kynntist kærastanum sínum, Antun Jarič, eða Tunjo eins og hann er kallaður, á kaffihúsinu Pandora í Sikirevci og stefnir nú á að flytja til...