Píramídarnir borga sig fyrir suma

Piltur í einu af fátækari hverfum Mexíkóborgar. Hvort mun gagnast …
Piltur í einu af fátækari hverfum Mexíkóborgar. Hvort mun gagnast honum betur næstu áratugina: öflugur hagvöxtur eða minni losun koltvísýrings? AFP

Á leiðinni hingað út í paradísareyjuna Holbox, á norðaustur odda Yucatan-skagans, stóð magamikill og keikur mexíkóskur afi í stefni ferjunnar og gætti þess að fimm litlir gríslingar sem voru með í för færu sér ekki að voða. Barnabörnin voru svo forvitin um allt sem fyrir augu bar að spurningarnar komu hver á fætur annarri:

„Afi! Afi! Af hverju sé ég enga fiska?“ spurði eitt krílið.

„Af því að þeir eru að fela sig,“ var svarað að bragði.

„En afi – af hverju er sjórinn hérna svona grænn á litinn?“ spurði annað barnið.

„Af því að það er búið að bæta út í hann litarefnum,“ útskýrði afinn án þess að hika.

Að mér læddist sú hugsun að fyrir mörg hundruð árum hlytu fjölskyldur frá þessum slóðum að hafa siglt þessa sömu leið, en ekki til að komast í fámennið og náttúrufegurðina sem laðar að ferðamenn í dag, heldur til að flýja geggjunina á meginlandinu þar sem fórnir á jafnt börnum sem fullorðnum...