Hvert yrði vægi Íslands innan ESB?
Hjörtur J. Guðmundsson
Formlegt vægi ríkja Evrópusambandsins innan þess miðast fyrst og fremst við íbúafjölda þeirra sem verður að teljast afar óhagstæður mælikvarði fyrir okkur Íslendinga. Gera má því ráð fyrir að vægi okkar innan sambandsins yrði hliðstætt og Möltu en þar bjuggu um 400 þúsund manns í lokárs 2006. Ísland yrði ásamt Möltu fámennasta aðildarríkið og þar með með minnst vægi.
Einn fulltrúi í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins yrði Íslendingur. Í Nice-sáttamálanum er gert ráð fyrir því að þegar aðildarríkin eru orðin 27 (sem þau urðu um áramótin 2006-2007) verði fulltrúarnir í framkvæmdastjórninni færri en aðildarríkin sem kemur væntanlega til framkvæmda við skipun næstu framkvæmdastjórnar árið 2009 að óbreyttu. Í fyrirhugaðri stjórnaraskrá sambandsins er hins vegar gert ráð fyrir að hvert aðildarríki eigi aðeins fulltrúa í framkvæmdastjórninni annað hvert kjörtímabil en kjörtímabilið er 5 ár.
Þess ber þó að geta að fulltrúarnir í framkvæmdastjórninni eru í raun einungis fulltrúar aðildarríkjanna að því leyti að ríkisstjórnir þeirra tilnefna þá. Þess utan er þeim óheimilt að draga taum heimalanda sinna og ber einungis að líta til svokallaðra heildarhagsmuna Evrópusambandsins sem hafa haft ríka tilhneigingu til þessa til þess að endurspegla hagsmuni stærri ríkja sambandsins.
Í leiðtogaráðinu sitja leiðtogar ríkja Evrópusambandsins og forsætisráðherra Íslands myndi sitja þar sem fulltrúi landsins. Í ráðherraráðinu myndi Ísland væntanlega fá þrjú atkvæði af 345. Á Evrópusambandsþinginu fengjum við 5 þingmenn en þar sitja í dag 785 þingmenn, 6 af 750 ef fyrirhuguð Stjórnarskrá Evrópusambandsins verður samþykkt.
Samkvæmt Lissabon-sáttmálanum (lesist fyrirhugaðri Stjórnarskrá Evrópusambandsins) mun fulltrúum ríkja Evrópusambandsins í ráðherraráðinu ekki lengur vera heimilt að vinna sérstaklega að hagsmunum heimalanda sinna og þess í stað verða skyldaðir til að horfa einungis til áðurnefndra heildarhagsmuna sambandsins.
Í efnahags- og félagsmálanefnd sambandsins, sem og héraðanefnd þess, myndi Ísland væntanlega líkt og Malta fá fimm fulltrúa en alls eru 344 fulltrúar í þessum nefndum í dag.
Ísland myndi tilnefna einn dómara í dómstól Evrópusambandsins en hann væri, líkt og fulltrúinn í framkvæmdastjórninn, ekki fulltrúi íslenzkra hagsmuna.
Ríki Evrópusambandsins skiptast á að vera í forsæti ráðherraráðsins í sex mánuði í senn. Miðað við 28 ríki færi Ísland með forsætið á 14 ára fresti. Ef stjórnarskráin verður samþykkt verður þetta kerfi afnumið og í staðinn kemur sérstakur kjörinn forseti ráðsins.
Að öðru leyti myndi í raun ekkert breytast við aðild hvað varðar vægi okkar innan Evrópusambandsins. Aðalvægi Íslands innan sambandsins myndi áfram byggjast á "lobbyisma", rétt eins og raunin er í dag. Á móti myndum við gefa eftir yfirráð okkar yfir flestum okkar málum en lítið sem ekkert hafa um þau að segja eftir það.
Höfundur er stjórnarmaður í Heimssýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum
Ísland og Evrópusambandið
- Evrópusambandið - almennt
- Evrópusambandið
4. jan. - EES samningurinn
5. jan. - Landbúnaður
6. jan. - Gjaldmiðillinn
7. jan. - Finnland
8. jan. - Stjórnkerfi og stofnanir
9. jan.
- Orka og auðlindir
10. jan. - Sjávarútvegur
11. jan. - Umhverfismál
12. jan. - Utanríkis- og öryggismál
13. jan. - Umsóknarferlið
14. jan. - Mannréttindi
15. jan. - Danmörk og evran
18. apr.
Sjónvarp
-
Telur að um misskilning sé að ræða
Steingrímur J Horfa
-
Össur: „Diplómatískur sigur“
„Ég er auðvitað ákaflega glaður og hamingjusamur með það að utanríkisráðherrarnir skuli hafa afgreitt þetta í dag. Það er diplómatískur sigur fyrir okkur Íslendinga Horfa
-
Leyfir mönnum að kæla sig
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra telur að málin hafi þróast Íslendingum í vil innan Evrópusambandsins og hann segist vera bjartsýnn á að við fáum að halda okkar hlut hvað auð Horfa
-
Fjölþætt sannfæring
Svandís Svavarsdóttir þingmaður VG segist hafa kosið samkvæmt sannfæringu sinni í kosningunni um aðildarumsókn að Evrópusambandinu í dag og vísar á bug ásökunum um svipuhögg og fle Horfa
-
Blendnar tilfinningar
Steingrímur J. Sigfússon sagði að það bærðust blendnar tilfinningar í hans brjósti að lokinni kosningu þar sem hann studdi þá tillögu að farið yrði í aðildarviðræður við ESB Horfa
Ekkert svar barst frá ytri þjóni. Vinsamlegast reynið aftur síðar. (500 Can't connect to mas:82)
Skoðanir annarra
Hvers vegna sögðu Norðmenn NEI?
Frændur okkar Norðmenn hafa tvívegis efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu, ESB, (áður Evrópubandalaginu), árin 1972 og 1992 Meira
Kæru landsfundarmenn
Aðildarumsókn í ESB er draumur samfylkingar. Sjálfstæðismenn hafa fram að þessu ekki deilt þessum draumi. Meira
Evrópusamstarf sparar vinnu og peninga
Þátttaka í Evrópusamstarfi hefur sparað íslensku stjórnsýsluna umtalsverða vinnu og fjármuni við mótun löggjafar, t.d. á sviði umhverfismála. Meira
“Kreppan” og ESB
BANKAHRUNIÐ og stöðvun útlána hefur sett stórt strik í fjárfestingarfyllirí landsmanna. Óraunhæft og brjálæðislegt húsnæðisverð hefur sigið á höfuðborgarsvæðinu og á eftir að síga enn Meira
Athugasemd við grein 32 hagfræðinga
Á ÍSLANDI fara nú fram mikilvægar umræður um framtíðarskipan gjaldeyrismála. Ég hef fengið tækifæri til að fylgjast lítillega með því sem rætt hefur verið og ritað Meira
Örlög Íslands öruggust í höndum Íslendinga
Íslenskar tilfinningar munu aldrei þola forsjá annarra þjóða Meira
Efnahagsleg- og pólitísk staða Íslands
Ísland og íslendingar hafa fundið á eigin skinni hvernig það er að vera einir og hálf umkomulausir í samfélagi þjóðanna síðast liðna mánuði Meira
Hvert yrði vægi Íslands innan ESB?
Því er gjarnan haldið fram af þeim sem vilja ganga í Evrópusambandið að innlimun í sambandið sé nauðsynleg til þess að við getum haft áhrif innan þess Meira
Einhliða upptaka er lausn á gjaldeyrisvanda
Upptaka evru með inngöngu í ESB tæki of langan tíma, a.m.k. fimm ár. Því ber að íhuga vandlega einhliða upptöku gjaldmiðilsins. Meira
Eru aðildarviðræður nauðsynlegar til að kanna hvað ESB hefur upp á að bjóða?
Staðreyndin er sú að allir sem vilja geta séð hvað ESB hefur upp á að bjóða. Til þess þarf ekki aðildarviðræður. Meira
Á evrusvæðið framtíðina fyrir sér?
Tilkoma evrunnar var fyrst og fremst hugsuð sem stórt samrunaskref innan Evrópusambandsins. Tilgangurinn var öðru fremur pólitískur en ekki efnahagslegur, þ.e Meira
Einhliða upptaka evru er engin töfralausn
Íslendingar glíma nú við afleiðingar gjaldeyris- og fjármálakreppu. Gjaldeyriskreppan er í raun enn óleyst en úrlausn hennar slegið á frest með upptöku hafta á fjármagnsviðskiptum Meira
Er EES-samningurinn orðinn úreltur?
Ekkert bendir til þess að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) sé orðinn úreltur þó ýmsir hafi vissulega orðið til þess í gegnum tíðina að halda því fram Meira
EES felur ekki í sér hefðbundið neitunarvald
EES-samningurinn felur ekki í sér neiturnarvald miðað við hefðbundnar skilgreiningar á neitunarvaldi ríkja innan alþjóðastofnanna. Meira
Fullveldi og framsal valdheimilda: Samanburður á ESB og EES
Hér verður leitast við að skýra hvernig álitaefni um framsal ríkisvalds (fullveldis) og þörf fyrir breytingu á stjórnarskrá horfa við með ólíkum hætti gagnvart Evrópusambandinu (ESB) og Evrópska efnah Meira
Getum við rekið þá?
Getum við rekið þá sem stjórna landinu okkar? Þetta er alger grundvallarspurning þegar rætt er um lýðræðið. Meira
ESB-aðild, evra og atvinnuleysi
Þrautalendingin til að fullnægja evru-skilyrðum yrði aukið atvinnuleysi langt yfir þau mörk sem hér hafa ríkt eða talist ásættanleg undanfarna áratugi Meira
Samstaða um Evrópu
Þess vegna er lykilatriði að fulltrúar allra stjórnmálaflokka, jafnt þeirra sem eru hlynntir aðild og mótfallnir komi að mótun samningsmarkmiðanna. Meira
Erum við skák og mát ? Átt þú ekki næsta leik?
Á NÝBYRJUÐU ári velta margir því fyrir sér, hverra kosta er völ fyrir lýðveldið Ísland í kjölfar bankahrunsins mikla. Hverjum er um að kenna? Meira
Fagna liðsinni formanns LÍÚ
Evrópusambandsaðild og upptaka evru er raunhæf leið sem getur aðstoðað okkur að halda uppi samkeppnishæfi þjóðarinnar. Meira
Gegn umsókn í ESB á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins
Fulltrúar á Landsfundi eiga ekki, nauðbeygðir af áróðri ESB-trúarspekinga, að samþykkja umsókn í Evrópusambandið. Meira
Áskorun til Íslendinga
Innganga í ESB fæli í sér algera örvæntingu, rétt eins og raunin var í tilfelli okkar Breta. Meira
Góðir íslendingar, er EBS lausn?
SKÚLI Thoroddsen ritar athyglisverða grein í Morgunblaðið þann 14. des sl. Lokaorð greinarinnar eru; „að ekkert sé að óttast þó að af aðild Íslands verði….“ Hvar er þá fullveldi Íslands komið? Meira
Tengt efni
Stofnanir ESB og Lissabon-sáttmálinn
- Í skýrslu evrópunefndar forsætisráðherra frá 2007 er samantekt um stofnanir og ákvarðanatökuferli ESB á bls. 21-25.
- Umfjöllun um Lissabon-sáttmálann á vef fastanefndar ESB gagnvart Íslandi og Noregi
- Umfjöllun á vef Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins um Lissabon-sáttmálann
- Spurningar og svör um Lissabon-sáttmálann á vef BBC (á ensku)
- Vefur stjórnvalda á Írlandi um Lissabon-sáttmálann (á ensku)
- Sósíalíski verkamannaflokkurinn á Írlandi var meðal þeirra sem barðist gegn Lissabon-sáttmálanum (á ensku)
- Á vef BBC er ítarleg umfjöllun um flest sem snertir ESB (á ensku)
- Umfjöllun um stofnanakerfi ESB á vef ESB (á ensku)
- Fjöldi starfsmanna ESB (á ensku)
Utanríkis- og öryggismál
- Greinargerð sérfræðings hjá utanríkisráðuneytinu um utanríkis- og öryggismálastefnu ESB
- Skýrsla utanríkisráðherra frá 2007 um Evrópumál. Á bls. 31 er umfjöllun um utanríkismál
- Vefur fulltrúadeildar Bandaríkjaþings um kosningar hjá Sameinuðu þjóðunum. Upplýsingar um Ísland eru undir Country voting pracices. (á ensku)
EES og ESB
- EES-vefur utanríkisráðuneytisins
- Vefur EFTA (Fríverslunarsamtaka Evrópu) um Evrópska efnahagssvæðið (á ensku)
- Hvað breytist raunverulega við aðild að ESB, spyr og svarar Eiríkur Bergmann Einarsson, dósent við Háskólann á Bifröst
- Guðmundur Hálfdanarson, sagnfræðiprófessor við HÍ, skrifar um hvort fullveldið glatist við inngöngu í ESB.