Fréttavefur mbl.is
Fréttavefur mbl.is - Morgunblaðið á Netinu - er rekinn af Netdeild Morgunblaðsins, sem stofnuð var 1997. Netstjóri mbl.is er Soffía Haraldsdóttir. Netfréttastjóri er Guðmundur Sv. Hermannsson.
Koma má fréttum á framfæri við netfréttadeild gegnum netfangið netfrett@mbl.is eða í síma 569-1269. Koma má á framfæri ábendingum og athugasemdum um aðra þætti vefjarins á vefstjorn@mbl.is. (Hér má lesa meira um hvert fólk getur snúið sér þegar það vill komast í samband við mbl.is eða Morgunblaðið).
Skjástillingar
Þar til 26. nóvember 2007 var boðið upp á tvær mismunandi skjábreiddarstillingar á mbl.is. Sá möguleiki hefur ekki alveg verið tekinn út, en hins vegar hálfvegis falinn og ekki lengur tekið tillit til hans í hönnun vefjarins. Þessi ráðstöfun er nánar skýrð á sér síðu.
Meðferð einkaupplýsinga á mbl.is
- Notendur mbl.is geta þurft að gefa einkaupplýsingar í sambandi við kaup á þjónustu á vefnum eða til að geta tekið þátt í könnunum eða keppnum. Ef þeir vilja síðar að þessum upplýsingum sé eytt, mun mbl.is verða við þeirri ósk, nema því aðeins að það sé ekki hægt af bókhaldslegum eða lagalegum orsökum.
- Vefkökur (cookies) eru notaðar á ýmsum hlutum vefjarins og í ýmsum tilgangi. Þær geta t.d. verið notaðar til að fylgja slóð tiltekins notenda gegnum vefinn eða halda utan um hvaða auglýsingar hann hefur séð. Vefkökur eru þó ekki tengdar við einkaupplýsingar með neinum hætti, nema í þeim tilvikum sem nefnd eru hér að ofan. Einkaupplýsingarnar eru aldrei vistaðar í vefkökunum sjálfum.
- Morgunblaðið og mbl.is standa vörð um einkaupplýsingar notenda, og þær eru aldrei framseldar til þriðja aðila án samþykkis viðkomandi.
- Spurningum og kvörtunum vegna meðferðar einkaupplýsinga skal beint til netstjóra mbl.is, Soffíu Haraldsdóttur.
Tækniatriði - vafrastuðningur
Á mbl.is eru notuð a CSS-stílsnið til að stjórna útliti síðunnar. Stuðningur fyrir þau er fyrir hendi í nær öllum nýrri vöfrum, en ekki í nægilegum mæli í mjög gömlum vöfrum eins og t.d. Netscape Navigator 4.0 eða Microsoft Internet Explorer 4.0.
Ýmis gagnvirkni á mbl.is og hlutar leiðakerfisins krefjast þess að vafrinn styðji JavaScript og taki við vefkökum.
Útlitsstillingar vefjarins miðast almennt við að lesandinn skoði hann á skjá með a.m.k. 1024 díla upplausn á breiddina.
Mælt er með Mozilla Firefox vafranum fyrir Windows og Linux. Fyrir Mac OS X er mælt með Safari, og fyrir gamlar útgáfur af Mac OS (8.x og 9.x) er mælt með iCab 3.
Hér eru taldir helstu vafrar sem styðja mbl.is. Þeim sem ekki geta nýtt neinn neðangreindra vafra er bent á lófatölvu- og farsímavef okkar eða auðlesinn mbl.is.
Windows
- Microsoft Internet Explorer 7.0 eða nýrri (útgáfa 6.0 er ekki lengur studd)
- Firefox 3.0 eða nýrri - og almennt nýlegir vafrar sem byggðir eru á Mozilla, t.d. Flock, Netscape eða K-Meleon.
- Opera 9.52 eða nýrri
Mac OS X
- Safari 3.0 eða nýrri - og almennt nýlegir vafrar sem byggðir eru á Apple WebKit, t.d. OmniWeb og Shiira
- Firefox 3.0 eða nýrri - og almennt nýlegir vafrar sem byggðir eru á Mozilla, t.d. Camino og Flock.
- iCab 4.0 eða nýrri
- Opera 9.52 eða nýrri
Linux
- Firefox 3.0 eða nýrri - og almennt nýlegir vafrar sem byggðir eru á Mozilla, t.d. Epiphany.
- Konqueror 4.2 eða nýrri og aðrir nýlegir vafrar sem byggja á KHTML/WebKit, s.s. Midori
- Opera 9.52 eða nýrri
Unix
Notendum FreeBSD, Solaris og annarra Unix-afbrigða skal bent á listann fyrir Linux.
Mac OS 9.x og eldra
Notkun á MacOS Classic er hverfandi, og lítil sem engin endurnýjun á þeim vöfrum sem til eru fyrir það stýrikerfi. Eftirtaldir vafrar gefa ekki fullan stuðning en ættu samt að vera nothæfir að mestu á mbl.is og blog.is.
- iCab 3.0 eða nýrri
- Classilla
- WaMCom 1.31
- Netscape 7.0
Önnur stýrikerfi
Nútímavafrar fyrir önnur stýrikerfi en ofangreind byggja flestir á tvenns konar grunni: annars vegar Mozilla-grunnkóðanum (Gecko), og hins vegar á WebKit. Nýlegar útgáfur slíkra vafra ættu að nýtast vel á mbl.is.
Veðrið kl. 10
Reykjavík
7°
|
||
| Akureyri | 2° | |
| Egilsst. | 0° | |
| London | 9° | |
| K.höfn | 5° | |
| New York | 11° | |
|
Velja borgir |
||
Auglýsingar
- Skattframtöl 2010 frá kr. 5.000! Sími 534-7079!
- Kransakaka að hætti Örvars Birgissonar
- Hamborgari með paprikuaioli
- Gleraugnaverslunin Sjónarhóll
Samgöngur
Gjaldmiðlar
| USD | 127.00 |
| EUR | 171.80 |
| GBP | 190.50 |
| CAD | 124.85 |
| DKK | 23.09 |
Staður og stund
- Hæðargarður 31
- Bólstaðarhlíð 43
- Félag eldri borgara í Reykjavík Stangarhyl 4 þriðjudagur 23.mars
- Dagskrá Gjábakka þriðjudaginn 23. mars 2010
- Félagsstarf Gerðubergi
Stjörnuspá
Hrútur
Lát ekki metnaðinn leiða þig í gönur. Láttu partý (og drukknu ökumennina) lönd og leið og kúrðu þess í stað heima með ástinni þinni.
Lottó
| Lottó 20.3.2010 | |||||
| 11 | 14 | 17 | 22 | 39 | 26 |
| Jóker | |||||
| 0 | 0 | 8 | 1 | 9 | |
| Áskrift á www.lotto.is | |||||
| Birt án ábyrgðar | |||||








Senda inn efni


Reykjavík