Féll án fallhlífar úr 22 þúsund fetum

Sprengjuvélin „Wee Willie“ sést hér falla stjórnlaust til jarðar yfir …
Sprengjuvélin „Wee Willie“ sést hér falla stjórnlaust til jarðar yfir Kranenburg í Þýskalandi eftir að hafa orðið fyrir loftvarnaskotum. Einungis flugstjórinn komst lífs af. Ljósmynd/Bandaríski flugherinn

Sunnudaginn 3. janúar 1943 flaug stór hópur af bandarískum sprengjuflugvélum yfir Ermarsundið og í átt að Frakklandi. Skotmarkið var mikilvæg kafbátaherstöð Þjóðverja við Saint-Nazaire, staður sem áhafnir sprengjuvélanna uppnefndu gjarnan „Flak City“, eða loftvarnaborgina, sökum þeirra miklu varna sem þar mátti finna. Ein þessara flugvéla nefndist „Snap! Crackle! Pop!“ og var hún skotin niður í leiðangrinum, þá í um 22 þúsund feta hæð. Tíu voru í áhöfn og féll einn þeirra útbyrðis án fallhlífar sinnar og þótt ótrúlegt megi virðast lifði sá fallið af. 

Sprengjuvélin „Snap! Crackle! Pop!“ var nefnd eftir teiknimyndafígúrunum þremur sem skreyta umbúðir morgunkornsins Rice Krispies og var mynd af þeim máluð á nef flugvélarinnar hvar þeir félagar sitja brosandi ofan á sprengju. Vélin var af gerðinni B-17, sem gjarnan gengur undir gælunafninu „Fljúgandi virki“, og framleidd af bandaríska...