Glaumgosinn í hópi flugása

Flugásinn Hans-Joachim Marseille skaut niður 158 flugvélar bandamanna í styrjöldinni. …
Flugásinn Hans-Joachim Marseille skaut niður 158 flugvélar bandamanna í styrjöldinni. Hér sést hann við eina þeirra, breska orrustuvél af Hurricane-gerð. Myndin er tekin í Norður-Afríku í febrúar 1942. Ljósmynd/Bundesarchiv

Agavandamál eða einn allra besti flugkappi Þriðja ríkisins – Þannig er þýska flugásnum Hans-Joachim Marseille lýst. Honum er gefið að hafa grandað alls 158 flugvélum og tókst engum öðrum flugmanni að skjóta niður viðlíka fjölda flugvéla úr röðum vestrænna bandamanna. En þar með er ekki öll sagan sögð því Hans-Joachim tók einnig frítíma sinn af mikilli hörku. Er hann sagður hafa stundað næturlíf af svo miklum krafti að yfirstjórn flughersins Luftwaffe tók að lokum þá ákvörðun að senda hann alla leið til Norður-Afríku. Svo mjög lá á að halda honum frá sukkinu, en í Afríku átti hann eftir að raða inn loftsigrum.

Hans-Joachim Walter Rudolf Siegfried Marseille, gjarnan kallaður Jochen af þeim sem hann þekktu, fæddist 13. desember 1919 í Berlín. Hann er sonur hjónanna Charlotte Marie Johanna Pauline Gertrud Riemer og Siegfried Georg Martin Marseille, flugkappa úr fyrri heimsstyrjöld. Er fjölskyldan sögð komin af húgenottum sem á sínum tíma flúðu Frakkland í kjölfar...