Guðrún Hafsteinsdóttir
Guðrún Hafsteinsdóttir

Þau Guðrún Hafsteinsdóttir, Vilhjálmur Árnason og Ásmundur Friðriksson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, hafa lagt fram frumvarp um breytingu á erfðalögum og lögum um erfðafjárskatt. Leggja þau til að foreldrar geti arfleitt börn sín að allt að tíu milljónum króna skattfrjálst. Er lagt til í frumvarpinu að upphæðin verði vísitölutryggð svo réttindin haldi í við verðlag.

Guðrún Hafsteinsdóttir er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. Í samtali við Morgunblaðið segir hún að með frumvarpinu ætti hvert barn von á því að fá samtals 20 milljónir skattfrjálst frá báðum foreldrum. Ráðstöfunin má vera í nokkrum greiðslum yfir tíu ára tímabil og endurnýjast rétturinn ekki að þeim árum liðnum.

Ósanngjarn skattur

„Þetta er lítil breyting og kveikjan að þessu er sú að við vitum að í því ástandi sem hefur verið

...