Richard N. Ringler, Dick, fæddist í Milwaukee, Wisconsin 21. janúar 1934. Hann lést 22. febrúar 2024.

Hann var sonur hjónanna H. Pauls Ringlers, blaðamanns við Milwaukee State Journal, og Friedu (Newman) Ringler.

Hann giftist Karin Louise Ericson sálfræðingi í desember 1959 og eiga þau tvö börn, Thor Stephen rithöfund sem býr í Madison og Thomasine Louise listakonu sem kennir við Háskólann í Iowa. Thor er kvæntur April Sopkin listakennara. Börn þeirra eru tvö, sonurinn Fritz og dóttirin Archana. Thomasine á einn son, Lauris Ringler.

Dick Ringler lauk meistaraprófi frá University of Wisconsin-Madison árið 1956 í enskum bókmenntum og doktorsprófi (Ph.D) í enskum miðaldafræðum frá Harvardháskóla árið 1961. Hann hóf kennslu við Wisconsinháskóla og var skipaður prófessor í enskum og norrænum fræðum

...