![Ljóðskáldin Upplýst var í Gunnarshúsi í gær hvaða fimm höfundar eru tilnefndir til Maístjörnunnar í ár.](/myndir/gagnasafn/2020/05/08/GP615EG2O.jpg)
Maístjarnan, ljóðabókaverðlaun Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns verða veitt í fjórða sinn í maí. Upplýst var í Gunnarshúsi í gær hvaða höfundar væru tilnefndir til Maístjörnunnar í ár. Tilnefnd eru Jónas Reynir Gunnarsson fyrir Þvottadagur sem Páskaeyjan gefur út; Kristín Eiríksdóttir fyrir Kærastinn er rjóður sem JPV gefur út; Sigurlín Bjarney Gísladóttir fyrir Undrarýmið sem Mál og menning gefur út; Þórður Sævar Jónsson fyrir Vellankatla sem Partus gefur út og Þór Stefánsson fyrir Uppreisnir sem Oddur gefur út. Tilnefndar bækur eru allar til sýnis í anddyri Þjóðarbókhlöðunnar.
Gjaldgengar voru allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2019 sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og fékk dómnefnd þær til umfjöllunar. Dómnefnd skipa Guðrún Steinþórsdóttir, fyrir
...