Heimsglugginn

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson , Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu örlög þeirra sem hafa sett sig upp á móti Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Alexei Navalny hefur bæst í hóp þeirra sem hafa dáið beint eða óbeint vegna andstöðunnar við forsetann. Á Vesturlöndum er litið svo á að Navalny hafi verið myrtur að undirlagi Pútíns. Í hópi þeirra Rússa sem handlangarar Pútíns hafa myrt eru meðal annarra Alexander Litvinenko, Anna Politkovskaya, Sergei Magnitsky, Boris Nemtsov og Jevgení Prígósjín. Þá ræddu þau í lokin um skýrslu sænsku öryggislögreglunnar SÄPO um ógnanir við Svíþjóð. Þar segir að mest hætta stafi af Rússlandi, Kína og Íran. Charlotte von Essen, yfirmaður SÄPO, sagði að friði væri ógnað og ástandið yrði alvarlegt í fyrirsjáanlegri framtíð. Grænlenska landsstjórnin í gær utanríkis-öryggis- og varnarmálastefnu og þar kemur meðal annars fram að stefnt skuli að aukinni samvinnu við Norður-Ameríku og Ísland. Þetta er stefnumótun til næsta áratugar og að henni standa allir flokkar á þingi nema einn, Naleraq.

Grimm örlög andstæðinga PútínsHlustað

22. feb 2024